Hitabylgja

Feðginin saman á leið heim úr leikskólanumEr ekki alltaf sagt að grasið sé grænna öðru megin???  Smile

Við fórum í útilegu fyrir helgi og sáum fyrir okkur sólríka ferð með miklum sólböðum og látum. Veðurspáin var á þá lund að það átti að vera sól, sól og meiri sól.

Til að gera langa sögu stutta þá var þetta æðislegt fyrsta daginn, ekki svo frábært næsta dag og svo þriðja þaginn vorum við farin að dansa regndans á kvöldin í þeirru veiku von að gula fíflið færi nú að láta sig hverfa.  Devil

Svo endaði þetta með því að við slaufuðum útilegunni fyrir tíman vegna hita. Við gátum okkur hvergi skýlt. Það var of heitt úti og hreint morð að hanga inni í tjaldi og ekki var óloftkældur bíllinn skárri.

Það er annaðhvort í ökkla eða eyra. Í dag fór hitinn á svölunum í 34° í forsælu og ég sit hér á naríunum að mundast við að vinna. Við reynum að fara niður á strönd seinnipartinn þegar lofthitinn í íbúðinni er orðinn þannig að það er farið að sjóða á flestum.  Crying

En ekki erum við að kvarta. Flestir eru orðnir brúnir og sætir nema ég, ég er bara brúnn. Lífið leikur annars við okkur og okkur er farið að hlakka til að fá afhenta nýju íbúðina okkar eftir viku.

Svo fengum við þær fréttir að Áslaug (mamma Sigrúnar) ætlar að koma til okkar í ágúst og vera heila viku og hlakkar okkur til að fá hana.

Kveðja frá Esbjerg - IJ

Ps. Nýjar myndir!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara rétta að skoða hvað aðrir Íslendingar í Esbjerg gera í hitanum

kveðja Dóra

 Ps: það er eitthvað vont að sjá ruslvörnina þegar svartir stafir eru á svörtum fleti...... En þetta tóskast í 3 tilraun...

Dóra Esbjergbúi (IP-tala skráð) 29.7.2008 kl. 21:35

2 identicon

Sæl verið þið.

Við erum ósköp fegin að hafa "sloppið" við hitabylgjuna og fengið viðráðanlegt veðurlag þegar við vorum hjá ykkur fyrir um 10 dögum. Samt er nú hitabylgja hér hjá okkur á klakanum þessa dagana, hitinn þó ennþá viðráðanlegur, jafnvel í óloftkældum bílum.

Kvðeja úr Mosó.

Einar frændi (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 00:04

3 identicon

Minn bíll er með loftkælingu.... liggaliggalá Það var geggjað að keyra um í 28 gráðu hita með rúðurnar niðri og loftkælingu inní bílnum!!!! Það fílaði ég sko í tætlur

Ingunn frænka (IP-tala skráð) 3.8.2008 kl. 01:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband