Mér finnst þessi fyrirsögn lýsa ansi vel jólaundirbúningnum hjá minni fjölskyldu. Þetta eru önnur jólin í röð sem við eigum hvergi heima. Síðustu jól stóðum við í flutningi frá Akureyri til Hafnarfjarðar og þessi jól frá Hafnarfirði til Danmerkur.
Þó að það væri ljúft að standa í jólabaslinu sjálfur fyrir sína þá get ég nú ekki kvartað yfir þeim aðstæðum sem við búum við, þó svo að við séum tæknilega séð á götunni. Við búum við þá gæfu að eiga foreldra sem keppast við, og það eru engar ýkjur, keppast við að láta okkur líða sem best.
Það er eldað og bakað og bakað og eldað í því magni að hægt væri að fæða hálfan hjálpræðisherinn. Flestar máltíðir dagsins eru lagskiptar, þ.e. tvírétta eða meira og ég hef það sterklega á tilfinningunni að þau haldi að þau komi aldrei til með að sjá okkur aftur því hver máltíð er eins og fínasta erfidrykkja. Svo veltumst við á milli eldhússins, stofunnar og svefnherbergisins með reglubundnum viðkomum í konfektskálum.
Án þess að vera að kvarta yfir þessu þá er þetta hálfgerð skelfing, alveg frá því að við vöknum á morgnana þangað til að við ropum framan í hvort annað góðri nótt ...
Á því liggur enginn vafi að þetta verða yndisleg jól. Þegar þetta er skrifað (á þorlák) erum við á Flúðum hjá tengdó. Seinna í dag förum við upp í bústað til minna foreldra og svo komum við aftur hingað annan í jólum og förum svo suður aftur fyrir áramót. Áramótunum verjum við svo með yndislegu vinarfólki okkar, Ásbirni og Helgu og þeirra börnum áður en að ég flýg heim (til danmerkur) á nýársmorgun.
Samhliða próflestri mun ég leggjast í afeitrun og stunda fundi fyrir offitusjúklinga ... Svo lýk ég prófum þann 10. jan. og fjölskyldan kemur út þann 11. Og þá verður kátt í höllinni ...
Til þín sem þetta lest óska ég yndislegra og gleðilegra hátíða. Ekki gleyma að njóta, ekki bara neyta ...haha!
Kveðja frá Flúðum! IJ
Vinir og fjölskylda | 23.12.2007 | 09:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ég er kominn í jólfrí!!! Og svo á ég líka afmæli í dag!!!
Þá er komið að því að fara að pakka niður og flytja. Það er nú ekki mikil vinna hjá mér að pakka því sem ég er með hérna úti. Við erum kanski að tala um einhverja klukkutíma. Það er eitthvað annað en heljamennið heima á íslandi. Konan mín er búin að vera í því að pakka búslóðinni heima síðan í nóvember. Svona var þetta líka þegar við fluttum frá Akureyri um síðustu jól. Önnur jólin í röð sem við búum í pappakössum. Úff! Aumingja konan mín. Ég er að hugsa um að afþakka öll jólakort um þessi jól og bið ykkur að senda konunni minni samúðarkort í staðin.
Ég ætla að fljúga heim á sunudaginn og koma dótinu okkar í gám. Svo kem ég aftur hingað út þann 1. janúar til að taka á móti gámnum og losa hann. Svo fer ég í próf þann 10. jan. og svo kemur fjölkyldan daginn eftir til að vera. Svo erum við svo sófistikeruð að við fluttum með okkur gardínusaumara út sem verður hjá okkur í viku á meðan við erum að koma okkur fyrir. Það er hún mamma gamla sem ég er að tala um. Ekkert smá frábært að fá gömlu með okkur!!!
Það er búið að vera fínt að vera hérna í Hjerting, þó að það hafi verið fulllangt stundum að hjóla í skólann. Eitt er þó sem stendur upp úr. Það er helvítis þvottaefnisþjófurinn! Ég hef lent í því í ÞRÍGANG að einhver andskotans húsmóðirin hérna í hverfinu hefur rænt af mér þvottaefninu mínu úr þvottahúsinu á meðan ég hef verið að þvo. Hverjir stela þvottaefni???
Eftir að þetta gerðist hef ég tekið eftir því að húsmæðurnar hérna í hverfinu eru ekki eins og annarstaðar. Þær eru bæði skömmustulegar og niðurlútar þegar maður kastar á þær auga. Og ég er næstum viss um að ég hafi séð horn á hausnum á einni druslunni þar sem hún stóð á náttsloppnum, með kaffibollann og sígarettu í munnvikinu, í hreinum fötum en mig grunar að hún hafi skítuga sál, helv. tu****!!!!!!
Þrefalt húrra fyrir konunni minni!!!! Sú á eftir að fá dekur þegar ég kem heim!!!!
Kveðja frá Hjerting, í síðasta sinn! IJ
Vinir og fjölskylda | 14.12.2007 | 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ég fékk afhenta lyklana af nýju íbúðinni okkar í dag. Hún er í Sonderis sem er fjölskylduhverfi í sömu fjarlægð frá miðbænum og Garðabær er frá miðbæ Reykjavíkur.
Hún er á 2 hæðum, 104 fm. Niðri eru herbergi, stofa, elhús og hol. Uppi eru 2 svefnherbergi, pallur og baðherbergi. Í bakgarðinum er leikvöllur fyrir krakkana og svo annar leikvöllur ca. 100 m. frá ásamt malbikuðum körfuboltavelli.
Í hverfinu eru svo 2 leikskólar í ca. 5 min. göngufæri og smá verslunarþyrping með matvöruverslun, pizzastað, pöbb og einhverju fleira. Ég er ca. 15 min að hjóla í skólann og ætti að vera svipað lengi heim aftur ...!! :-)
Frábær dagur í Esbjerg, rok og rigning en sól í hjarta!!! Kv. IJ
Vinir og fjölskylda | 4.12.2007 | 21:08 (breytt kl. 21:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Einhverstaðar las ég að eftir fótastærðinni mætti áætla það sem undir liggur.
Það minnir mig á söguna um manninn sem sat inni á bar með fætur uppi á borði. Ekkert athugavert við það í sjálfu sér nema hvað að hann var í nýjum kúrekastígvélum númer 48. Fljótlega fangaði hann athygli gæru-kvendis sem hugsaði sér gott til glóðarinnar og fékk hann því með sér heim.
Þegar hún hafði lokið sér af henti henti hún í hann tíuþúsundkalli. Manninum brá og vissi ekki alveg hvernig hann átti að taka þessu en ákvað að rétta henni peningana aftur. Sagði svo karlmannlega að hann þyrfti nú ekkert að fá greitt fyrir svona lagað, þetta hefði nú bara verið gaman! Þá sagði hún að þetta væri ekki greiðsla fyrir grínið en að hann skyldi bara kaupa sér skó sem pössuðu á hann ...
Þessi saga er ágæt og það sem meira er að hún ber í sér boðskap sem gott er að minna sig á reglulega.
Í fyrsta lagi er alveg sama hver maður þykist vera, hið sanna innræti kemur alltaf í ljós fyrr en seinna. Skítur hefur þann eiginleika að fljóta upp á yfirborðið. Þegar maður kynnist fólki þá er það yfirleitt ekki töffaraskapur, hégómi, yfirborðsmennska eða "hér er ég, um mig frá mér til míns" sem heillar fólk. Einlægni, hreinskilni og heiðarleiki er það sem skilur á milli vina og kunningja. Þetta þekki ég mjög vel af eigin raun því það er ekki svo ýkja langt síðan að ég fattaði þetta sjálfur.
Í bókinni "How to Win Friends and Influence People" eftir Dale Carnagie talar hann um að besta leiðin til að vekja áhuga annara er að sýna þeim einlægan áhuga sjálfur. Önnur góð myndlíking er að það þarf fyrst að setja eldivið í arininn, kveikja svo upp og blása lífi í glæðurnar, svo kemur ylurinn og hlýjan.
Hin hliðin á sögunni snýr að konugreyinu. Hún gerði sér væntingar um eitthvað æðislegt. En þar liggur hinn hundurinn grafinn! Of miklar væntingar hafa mjög sterka tilhneigingu til að breytast í vonbrigði. Þegar búið er að fá rað-fullnægingu áður en að hamförum kemur er bæði voðinn vís og broddurinn farinn.
Gott dæmi um þetta er þegar ég bauð konunni minni út að borða í Keflavík um vorið 2002. Eftir matinn fórum við á fótboltaleik með Víði í Sandgerði á móti Hetti frá Egilstöðum hmmm? (til að kaupa smá tíma) Svo sagði ég henni að við þyrftum að koma við upp á Leifstöð að ná í Kristínu sem var skiptinemi hjá okkur, hún væri að koma með kvöldfluginu frá Köben.
Þegar við komum upp á völl og inn í flugstöðina kom það í ljós að það var engin vé að koma frá Köben, það væri bara ein að fara þangað. Þá dró ég tvo flugmiða upp úr vasanum og spurði hvort hún væri til í að skreppa með mér í smá horny-moon yfir helgina. Ég myndi gefa mikið fyrir að eiga mynd af svipnum á henni þá. Ég var þá búinn að pakka fyrir hana í litla tösku naríum og náttfötum og sagði henni að við myndum bara kaupa á hana það sem uppá vantaði. Maður lifandi hvað þetta var frábær helgi!!! Ekkert planlagt, engar væntingar og því allt sem kom á óvart. Við erum sammála því bæði að þetta var besta helgarferðin okkar hingað til.
Þetta er búin að vera frábær vika. Ég sakna fjölskyldunar meira en orð fá lýst en hugga mig við það að konan mín yndislega er að koma næstu helgi og við ætlum að eiga aðra horny-moon helgi saman í Köben. Og viti menn, við erum ekki búin að plana neitt. Við vitum bara að eigin raun að með því að gera okkur engar væntingar til helgarinnar verður hún bara meira spennandi fyrir vikið.
Ástar,- og saknaðar kveðjur frá Esbjerg - IJ
Vinir og fjölskylda | 2.12.2007 | 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)