Mér finnst þessi fyrirsögn lýsa ansi vel jólaundirbúningnum hjá minni fjölskyldu. Þetta eru önnur jólin í röð sem við eigum hvergi heima. Síðustu jól stóðum við í flutningi frá Akureyri til Hafnarfjarðar og þessi jól frá Hafnarfirði til Danmerkur.
Þó að það væri ljúft að standa í jólabaslinu sjálfur fyrir sína þá get ég nú ekki kvartað yfir þeim aðstæðum sem við búum við, þó svo að við séum tæknilega séð á götunni. Við búum við þá gæfu að eiga foreldra sem keppast við, og það eru engar ýkjur, keppast við að láta okkur líða sem best.
Það er eldað og bakað og bakað og eldað í því magni að hægt væri að fæða hálfan hjálpræðisherinn. Flestar máltíðir dagsins eru lagskiptar, þ.e. tvírétta eða meira og ég hef það sterklega á tilfinningunni að þau haldi að þau komi aldrei til með að sjá okkur aftur því hver máltíð er eins og fínasta erfidrykkja. Svo veltumst við á milli eldhússins, stofunnar og svefnherbergisins með reglubundnum viðkomum í konfektskálum.
Án þess að vera að kvarta yfir þessu þá er þetta hálfgerð skelfing, alveg frá því að við vöknum á morgnana þangað til að við ropum framan í hvort annað góðri nótt ...
Á því liggur enginn vafi að þetta verða yndisleg jól. Þegar þetta er skrifað (á þorlák) erum við á Flúðum hjá tengdó. Seinna í dag förum við upp í bústað til minna foreldra og svo komum við aftur hingað annan í jólum og förum svo suður aftur fyrir áramót. Áramótunum verjum við svo með yndislegu vinarfólki okkar, Ásbirni og Helgu og þeirra börnum áður en að ég flýg heim (til danmerkur) á nýársmorgun.
Samhliða próflestri mun ég leggjast í afeitrun og stunda fundi fyrir offitusjúklinga ... Svo lýk ég prófum þann 10. jan. og fjölskyldan kemur út þann 11. Og þá verður kátt í höllinni ...
Til þín sem þetta lest óska ég yndislegra og gleðilegra hátíða. Ekki gleyma að njóta, ekki bara neyta ...haha!
Kveðja frá Flúðum! IJ
Vinir og fjölskylda | 23.12.2007 | 09:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)