Ég hef lengi verið mikill áhugmaður um mat og eldamennsku eins og á mér sést.
Eitt hef ég samt aldrei gefið mér tíma í að stúdera og það er spaghettísósa. Spaghettísósa er nefnilega ekki sama og spaghettísósa!
Hér er afraksturinn ... uppskriftin er fyrir ca. 6
ATH! Sósan þarf að malla í allavega 2 tíma, það er galdurinn!!!
1/2 kg. nautakhakk
2 laukar
5 rif hvítlaukur
2 stilkar sellerí
2 stórar gulrætur
2 dósir hakkaðir tómatar (með basiliku eða einhverju grænkryddi)
1/2 bolli tómatsósa
3 dl. vatn (skemmir ekki fyir að skvetta smá rauðvíni út í, ef þetta á að vera spari)
1 teningur af góðum kraft - Kjúklinga, lamba eða nauta, skiptir ekki öllu máli
2-3 mtsk. Sweet Chilli sósa (eða 1/2 tsk. chilli pipar og 1 mtsk. sykur)
1 tsk. paprikuduft
1 tsk. origano
1 tsk. timian, rósmarin eða eitthvað grænt og vænt
salt og pipar e. smekk
Fyrst þursteikti ég hakkið og tók það frá. Þar sem ég er með lítil börn þá steikti ég saman lauk, hvítlauk, gulrætur og sellerí þar til það var orðið meyrt og maukaði það svo með töfrasprota. Þannig losna ég við að krakkarnir borði matinn eins og fornleifafræðingar.
Svo set ég allt saman, maukið, tómatana og restina af hráefninu og leyfi þessu að malla á lágum hita í ca. 2 tíma.
Þetta er sem sagt barnaútgáfan af þessu. Frábært er að setja í þetta rauðvín til að poppa þetta upp og svo það sem er til í ískápnum, sveppi, papriku eða eitthvað annað spennandi.
Þegar búið er að sjóða og sigta spaghettíið þá mæli ég með því að henda í það smá smjörklípu eða ólífuolíu svo það klumpist ekki saman.
Svo þegar allt er komið á diskinn er bara að fullkomna þetta með rifnum parmesan og ferskri steinselju.
Þetta er dýrari týpan af sósu!!!!
Kveðja frá esbjerg - IJ
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkur: Matur og drykkur | 18.4.2008 | 17:19 (breytt kl. 17:30) | Facebook
Athugasemdir
Jæja,
Kíkið á bloggið mitt,
Vitið hvað ég er fara til spánar í óktóber í mánuuuð :D alveg til 6 nóv ....og svo held ég komi til DK ...því þarf millilenda þar en stað þess millilenda ætla bara koma heimsókn ef ég má og fara svo heim :D
Togga (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 18:44
Gaman að fá góða uppskrift í safnið, hér er uppskrift að einfaldir súpu fyrir námsmenn
Sölt Sojasúpa:
2,5 msk af Coop sojasósu
4 msk. af salti (NaCl)
dash af matarolíu
4 lítrar regnvatn
látið suðuna koma upp og lepjið t.d. úr skel eða horni.
Nils (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 17:51
Þetta er alveg afskaplega lík sósunni sem Heimir gerir og ég get sko ímyndað mér að þið smjattið svakalega yfir sósunni þinni. Bara snilld hjá þér.
Ingunn frænka (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 11:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.