... en ég læt sem ég sjái hana ekki.
Sumarið er skollið á okkur af fullum þunga. Það er búið að vera heiðskírt hjá okkur meira og minna´í 2 vikur. Hitinn hefur verið að stíga hægt og rólega og er núna að komast í 25° yfir miðjan daginn. Og svona er spáin líka. Sól, sól og sól næstu 2 vikurnar ...
Þetta er frábært fyrir þá sem eru í þessum pakkanum, að sóla sig og njóta lífsins, eins og Sigrún mín. Hún er orðin kaffibrún þessi elska enda er hún komin með það inn í rútínuna hjá sér að leggjast í sólbað þegar hún er búin með morgunskokkið í skóginum, eftir að hún fer með krakkana í skólann. NÆS!!!
Ég bíð spenntur eftir að klára próflesturinn. Nú er hann að skella á af fullum þunga. Ég er að fara í 6 tíma próf á morgun og er búinn að vera INNI að lesa síðustu daga að undanskildum einum degi sem ég fór niður á strönd að lesa. Tók Ásbjörn og Anton með og þeir voru á sundskýlum að busla í sjónum. Hann er reyndar ekki orðinn alveg nægjanlega heitur ennþá til að synda í.
Ég fer í síðasta prófið 10. júní og eftir það er það bara Sunshine Raggiee!!!!!!
Sólarkveðjur frá Esbjerg - IJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | 8.5.2008 | 15:18 (breytt kl. 15:18) | Facebook
Athugasemdir
Ég legg til að Sigrún komi með þessa sól með sér þegar hún kemur til Íslands...bara svo hún sé ekki að þvælast fyrir þér í próflestrinum (sko sólin, ekki Sigrún) Gangi þér vel Ingvar minn í prófunum
Annars bara bestu kveðjur frá okkur
Fríður og prinsessan á bauninni
Fríður (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 15:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.