Það er eflaust margt gott hægt að segja um þennan ágæta mann en ég held nú að Sturla sé ekki beittasti hnífurinn í skúffunni!!!!!
En ég verð nú að fá að viðra þá skoðun mína að sem talsmaður vörubílsjóra finnst mér hann búinn að gera ferlega vonda hluti. Hann er varla talandi, mjög málefnarýr og röreygður á almenna skynsemi, sé nú ekki minnst á heilindi.
Mér finnst með ólíkindum að maður sem þóttist ekki kannast við "félaga" sinn (Ágúst Fylkisson sem gaf löggunni á kjaftinn) ætli nú að fara fremstur í flokki jafningja í stjórnmál. Það sýnir bara hvaða mann hann jefur að geyma að afneita félaga sínum bara af því að það hentaði honum á þeim tímapunkti Hvar eru heilindin hjá Sturlu?
Ég myndi ekki treysta þessum manni fyrir ruslapokanum úr eldhúsinu hjá mér, hvað þá fyrir einhverju sem skiptir máli.
Kveðja frá Esbjerg - IJ
Sturla stofnar nýjan stjórnmálaflokk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vinir og fjölskylda | 6.6.2008 | 17:23 (breytt kl. 20:59) | Facebook
Athugasemdir
Hefði ekki getað orðað þetta betur sjálf!
Rakel Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 18:06
Algjörlega sammála þér þarna frændi.
En smá leiðrétting hér. Ágúst er Fylkisson, ekki Guðmundsson.
Þetta er Gústi á Bjargi, manstu ekki eftir honum Ingvar?
Palli (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 20:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.