Það er laugardagsmorgunn og þrír dagar í próf. Ég er uppi að lesa. Úti er 29° hiti og allir farnir á ströndina, óóóó nema ég!!!!! Myndin er tekin af hinum varska hóp strandfara í morgun ...
En það er í góðu lagi! Ég sit og moka í mig fróðleik af ýmsu tagi sem á örugglega eftir að nýtast mér einhverntíman í framtíðinni. Þrír dagar og svo er málið dautt.
Ég setti inn nýjar myndir sem hafa verið teknar bæði hér úti og á Íslandi síðustu 3 vikur.
Kveðja úr sólinni í Esbjerg - IJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | 7.6.2008 | 09:05 (breytt kl. 09:06) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.