Það er hægt að vera blankur og hamingjusamur!

happiness Það má nú segja að margt hafi breyst á stuttum tíma. Nú er komin smá reynsla á það að vera námsmaður í útlöndum með fjölskyldu á framfæri.

Það eru talsverð viðbrigði að fá ekki útborgað um mánaðamót eins og alltaf og þurfa allt í einu að hugsa sig tvisvar um áður en maður kaupir sér eitthvað.Langur vegur frá því að ég sé að kvarta um einhver blankheit og volæði. Þvert á móti. Það er frábært að vera í þeirri aðstöðu að þurfa að draga saman seglin og nýta það sem er til. Ég er farinn að nota alla hálffullu rakspírana mína, gömlu skyrturnar eru að öðlast nýtt líf og svo mætti lengi telja.

Það dýrmætasta í þessu öllur er að við erum að finna aftur það sem skiptir okkur mestu máli sem fjölskylda. Það er ekki aðkeypt afþreying sem gefur mest. Það eru þær stundir sem við verjum saman með krökkunum, í göngutúrum, bíltúrum og á leikvellinum. Það er ekkert að því að fara í bíó, sund, bowling, tívolí og Lególand endrum og eins, Það skilur hins vegar ekkert meira eftir sig þegar upp er staðið.

Ég er búinn að prufa það að vera hátekjumaður og eiga næga peninga um hver mánaðamót. Nú er ég námsmaður og á andkotann enga peninga í afgang. Ef ég ætti að bera saman þetta tvennt þá er engin spurning um hvort ég kjósi frekar. Þegar ég átti pening "átti" ég líka talsvert af leikföngum á afborgunum. Skuldbindingarnar voru margar og neyslan mikil. Þetta var góður tími en ekki eins innihaldsríkur og margur myndi ætla.

Það er margt undarlegt í gangi í henni veröld. Í dag "á" ég nánast engin leikföng en skemmti mér samt betur. Ég get ekki "keypt" eins mikið handa börnunum mínum og áður en er miklu nánara sambandi við þau. Ég "vinn" mun minna en er samt mun hamingjusamari. Við hjónaleysurnar höfum ekki mikla peninga á milli handana en rífumst mun sjaldnar, nánast aldrei … :o)

Ég held að ég sé að upplifa sönnun þess að hamingjuna er ekki að finna í veskinu heldur hjartanu. Það líður eflaust ekki sá dagur að þessi fróðleikur hljómi í eyrum okkar allra. Munurinn er bara sá að upplifa þennan boðskap í framkvæmd er annað en heyra hann frá öðrum eða að lesa hann í bók. Mér finnst ótrúleg verðmæti og forréttindi liggja í því að hafa fengið að spóla til baka fara í skóla aftur og fá að bremsa mig af í yfirborðskenndri, aðkeyptri veraldlegri funllnægju.

Þetta minnir mig á kvæði sem ég lærði í æsku og hefur nú öðlast nýtt líf hjá mér, ”Það er leikur að læra, leikur sá er mér kær. Að læra meira og meira, meira í dag en í gær!!! Ha, ha!

Það er hægt að vera blankur og hamingjusamur!

Kveðja frá Esbjerg - IJ 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Það er nú gott að þú skulir komin á þennan aldur, vera búinn að sjá og farinn að finna að hamingjan skuli vera í öðru en veskinu. Þó að peningar skipti miklu þá fer því víðs fjarri að ALLT velti á magni veraldlegs drasls, í þessu lífi það hef ÉG reynt í nokkra áratugi.

Annars óska ég ykkur alls hins besta, heyrumst eða hittumst vonandi sem fyrst.

Eiríkur Harðarson, 5.3.2008 kl. 13:35

2 identicon

Þetta eru virkilegar góðar vangaveltur hjá þér, kæri frændi, og umhugsunarverðar.

Ingunn frænka (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 22:14

3 identicon

Heyr, heyr .. hverju ordi sannnara en stundum verdur madur ad upplifa hvorutveggja til ad hafa einhvern samanburd ekki satt... ... madur lærir svo lengi sem madur lifir sem betur fer... . Annars gaman ad heyra ad allt gengur svona vel hjà ykkur ì nyjum heimkynnum. Hèr fæddist nyr erfingi 22 febrùar .. 3ja stùlkan stòr og myndaleg   . Bidjum ad heilsa ykkur og verid velkomin yfir "dammen" til Norge ef ykkur dettur tad ì hug...

klem Brynja og fj.. 

Brynja (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband