Hrein föt en haugskítug sál ...

Ég er kominn í jólfrí!!! Whistling  Og svo á ég líka afmæli í dag!!! Wizard 

Þá er komið að því að fara að pakka niður og flytja. Það er nú ekki mikil vinna hjá mér að pakka því sem ég er með hérna úti. Við erum kanski að tala um einhverja klukkutíma. Það er eitthvað annað en heljamennið heima á íslandi. Konan mín er búin að vera í því að pakka búslóðinni heima síðan í nóvember. Svona var þetta líka þegar við fluttum frá Akureyri um síðustu jól. Önnur jólin í röð sem við búum í pappakössum. Úff! Aumingja konan mín. Ég er að hugsa um að afþakka öll jólakort um þessi jól og bið ykkur að senda konunni minni samúðarkort í staðinCrying.

Ég ætla að fljúga heim á sunudaginn og koma dótinu okkar í gám. Svo kem ég aftur hingað út þann 1. janúar til að taka á móti gámnum og losa hann. Svo fer ég í próf þann 10. jan. og svo kemur fjölkyldan daginn eftir til að vera. Svo erum við svo sófistikeruð að við fluttum með okkur gardínusaumara út sem verður hjá okkur í viku á meðan við erum að koma okkur fyrir. Það er hún mamma gamla sem ég er að tala um. Ekkert smá frábært að fá gömlu með okkur!!! Tounge

Það er búið að vera fínt að vera hérna í Hjerting, þó að það hafi verið fulllangt stundum að hjóla í skólann. Eitt er þó sem stendur upp úr. Það er helvítis þvottaefnisþjófurinn! Ég hef lent í því í ÞRÍGANG að einhver andskotans húsmóðirin hérna í hverfinu hefur rænt af mér þvottaefninu mínu úr þvottahúsinu á meðan ég hef verið að þvo. Hverjir stela þvottaefni???

Eftir að þetta gerðist hef ég tekið eftir því að húsmæðurnar hérna í hverfinu eru ekki eins og annarstaðar. Þær eru bæði skömmustulegar og niðurlútar þegar maður kastar á þær auga. Og ég er næstum viss um að ég hafi séð horn á hausnum á einni druslunni þar sem hún stóð á náttsloppnum, með kaffibollann og sígarettu í munnvikinu, í hreinum fötum en mig grunar að hún hafi skítuga sál, helv. tu****!!!!!!

Þrefalt húrra fyrir konunni minni!!!! Sú á eftir að fá dekur þegar ég kem heim!!!!

Kveðja frá Hjerting, í síðasta sinn! IJ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Jakobsdóttir Richter

Til hamingju með daginn!  Vá hvað þú átt eftir að njóta jólanna vel heima í faðmi fjölskyldunnar!  Leyfið ykkur bara að njóta þess og passið ykkur á að gleyma ykkur ekki í stressinu! Gleðileg jól og njótið vel!

Kristín Jakobsdóttir Richter, 14.12.2007 kl. 20:13

2 identicon

Sæll frændi.

Til hamingju með daginn. Til lukku með húsnæðið og að fjölskyldan skuli loksins vera að koma út til þín. Hafið það gott um jólin hér á okkar vindasama skeri.

Fjölskyldan í Mosó er búin að kaupa flugmiða til Danmerkur. Lendum á Kastrup um miðjan dag 2. júlí 2008 og förum heim 23. júlí sama ár . Við komum til með að dvelja mikið í nágrenni Esbjerg en móðursystir Svövu býr í Gredstedbro og þar búum við stærstan hluta ferðarinnar.

Eruð þið búin að plana sumarið? Verðið þið í Danmörku? Ef svo er þá bönkum við uppá.

Verðum í bandi.

Bestu kveðjur og gleðileg jól.

Kveðja úr Mosó.

Einar frændi (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 21:55

3 identicon

Sæll vinur og til lukku med afmælisdagin tinn...

 jebb gòdar eiginkonur eru ekki à hverju strài kallinn minn svo haltu àfram ad passa vel uppà hana . Èg mynni minn mann alltaf à tad vet du!!

Njòtid jòlanna ì fadmi hvors annars og litlu englanna ykkar. Gangi ykkur vel ì fluttningunum og jà tad er gott ad eiga gòdar mùttur og tengdamömmur eru òmissandi bid ad heilsa henni "gömlu" vinkonu minni.

Jòla kvedja og klem fà okkur hèr ì Noregi og vonandi hittumst vid einn fagran dag

Tin vinkona Brynja

Brynja (IP-tala skráð) 15.12.2007 kl. 18:04

4 identicon

hæ gamli félagi og til hamingju með daginn. 

 Datt hérna inn á bloggið þitt nýlega og finnst gaman að geta fylgst með þér.  Vona að þið hafið það gott um jólin og að allir fluttningar gangi vel.   Bestu kveðjur til fólksins þíns

Þinn félagi Unnur Henrýs

unnur (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 20:04

5 identicon

Sæll Ingvar minn ég veit að þú lest þetta ekki núna þar sem þú ert staddur á Íslandinu sjálfu. En netdruslan er búin að liggja niðri í nokkra daga hjá mér þess vegna kemur þessi hamingjuósk svolítið seint. EN TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ Vonandi hittumst við um hátiðina. Elsku vinur. Kysstu konu og börn frá okkur. Knús og Kossar frá okkur

Eygló Sif (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 19:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband